Wednesday, November 29, 2006

Sjokkerandi fréttir

Ég er bara í nettu sjokki því fréttirnar hérna hafa verið svo svakalegar. Fyrst kom frétt um að maður hafði fundið nýfætt barn fyrir utan sumbústaðinn sinn en móðirin hefur ekki látið í sér heyra en barnið virðist vera heilbrigt. Svo kom frétt um að maður hafði orðið fyrir flutningabíl og svo keyrðu um það bil 15 bílar yfir líkið af honum því fólk hélt að hann væri dýr!! Frekar mikið ógeðfellt. Svo nú í dag sá ég að í gær hafði ung móðir með þrjú börn verið á leið út úr strætó þegar bílstjórinn lokaði hurðinni á barnavagninn sem hún var með þannig að barnið dróst með strætónum 16 metra og kastaðist svo úr vagninum og móðirin horfði ráðalaus á og var viss um að barnið hennar væri látið því það grét ekki eða sagði neitt. Hann var reyndar fullkomlega heilbrigður fyrir utan ljótar skrámur í andliti. Í sumar skeði nákvæmlega það sama fyrir unga móður sem var að koma úr lest með barnavagn og það barn dróst 1500 metra með lestinni en lestar keyra mikið hraðar en stætóar þannig að það var bara kraftaverk að það barn lifði af. úff úff.

Það virðist vera að bílstjórar almennt séu of stressaðir til að líta í kringum sig og athuga hvað er að gerast. Er þetta ekki pínu rosalegt??

læt þetta nægja í bili !!

3 comments:

Anonymous said...

já og enn verri frétt á mbl þar sem að svín átu dreng á Indlandi jeminn eini

Anonymous said...

Jeminn! Hversu lengi er madur ad jafna sig eftir ad horfa a barnid sitt dregid af lest??? HLytur ad vera rosalegt!

Anonymous said...

frank var nýbúinn að segja með frá drengnum á Indlandi þegar ég sá kommentið þitt, djöfull er þetta ógeðslegt!! ´

Ætli maður yrði ekki óþolandi over protective móðir ef maður lenti í svona löguðu eins og að sjá barnið sitt dragast á eftir lest, ég myndi amk ekki treysta fólki alveg á næstunni.