Monday, June 09, 2008

Yfirgengileg hræðsla

Ég ætla að verða pínu pólitísk núna... er að verða rosalega þreytt á því hvað fólk er alltaf hrætt við alla skapaða hluti og þá sérstaklega allt sem er framandi.
Ég bý í landi sem er matað með hræðsluáróðri 24/7 og er komin með algjöra gubbu. Arabarnir eru komnir til að yfirtaka okkur algjörlega. Ég bý í landi þar sem þriðji stærsti flokkurinn í ríkisstjórninni er anti múslímskur og breiðir hatursáróðri um Araba. Þeir munu koma á fót sharia lögum sem leyfa hálshöggvun og fleira í þeim dúr. Við verðum að banna fólki að ganga með slæður því það leyfir kúgun kvenna. Við munum tala arabísku eftir 20 ár. Við þurfum að reka fólk "heim" sem brýtur lögin þó að það sé fætt í þessu landi (Danmörku) eða amk alið upp hér frá barnsbeini þó að það þýði að fólk þurfi að flytja til Bagdad þar sem ríkir stríð sem við áttum þátt í að búa til. Allir glæpir í þessu landi eru framdir af Aröbum eða öðrum innflytjendum. Það er auðveldara að hafa svartan sauð sem hægt er að kenna um allt sem illa fer en að þurfa að takast á við vandamálin í eigin landi. Nú eru menn svo hissa á því að múslimar víðsvegar um heiminn séu reiðir út í Danmörku. Við erum nú að verða vitni að því að saklaust fólk er drepið í þeim tilgangi að sýna Danmörku hversu mikil reiðin er. Ekki gott mál!
Á heimasíðu danska Fréttablaðsins Nyhedsavisen getur maður lesið comment við hinum ýmsu fréttum og vá hvað fólk er rasískt! Það er sama hvað er verið að tala um þá fjalla commentin alltaf um hvað Arabar eru slæmir. Fáránlegt.

varð bara að fá þetta út úr mér! kem bráðum með meiri fréttir af sjálfri mér :)

3 comments:

Anonymous said...

Thad er ljota, og donum til skammar. Eg hafdi grun um ad thetta vaeri svona en kannski ekki alveg svona slaemt, puff...

Anonymous said...

Sumir ganga svo langt að segja að Dank folkeparti séu með anti múslímskan áróður á borð við anti gyðinga áróðurinn sem átti sér stað í seinni heimsstyrjöldinni. Ég er að verða nokkuð sammála því barasta. Þau skilgreina sig sjálf sem anti múslímskan stjórnmálaflokk. las comment í gær þar sem einhver hélt því fram að eftir nokkur ár væri Danmörk ekki einu sinni til lengur því múslímarnir yrðu örugglega búnir að sprengja það allt í tætlur! Það er ótrúlegt hvað er hægt að hræða fólk sem stanslausum áróðri.

Anonymous said...

Það er einmitt málið, að svona áróður er mjög sambærilegur við áróðurinn hér áður fyrr í nasíska Þýskalandi gegn Gyðingum sem allir hrylla sig yfir nú en eru svo blindir og fatta ekki að eins og talað er gegn múslimum er þetta sama fólk komið á alveg sama plan.
Gott Kristrún mín að benda á þetta!