Monday, June 09, 2008

Smá dæmi máli mínu til stuðnings

http://monokultur.dk/2008/05/02/dansk-folkeparti-rammer-folkedybet/

Ef skrollað er aðeins niður má sjá þau plaköt sem eru dæmi um öfgafenginn anti múslímskan áróður Dansk Folkeparti. Það versta er að þeim tókst að koma í geng lögum sem banna dómurum að bera slæður og önnur trúarleg tákn. Næst á dagskrá er svo að banna slæður í skólum og öllum opinberum stofnunum! Það er augljóst hvert er verið að fara með þessu. Ef einhver nennir og skilur dönsku er líka hægt að lesa þetta blogg sem ég er að vitna í. Ég veit að það eru margir mjög ósammála mér en ég er bara svo þreytt á þessum áróðri sem er oft falin á bakvið allskonar önnur rök sem erfitt er að þræta fyrir eins og að dómari eigi að vera hlutlaus.

2 comments:

Anonymous said...

En va spa i ad eyda svona miklum peningum og orku i thetta. Flokkurinn er alveg ad missa sig. Eg skil ekki hvad folk er hraett vid thessar slaedur, er ekkert annad ad berjast fyrir i danmorku en reglur um hofudfot domara

Anonymous said...

Já það er stundum bara fyndið hvað fólk nennir að velta sér upp úr þessu, til dæmis varð allt vitlaus þegar ein sundlaugin ákvað að hafa stelpukvöld (án stráka) einu sinni í viku þar sem m.a múslímskar stelpur geta synt án slæðanna sinna. Þetta var víst á móti öllum dönskum gildum að alveg hræðilegt haha! fáránlegt. Fólk er bara svo auðtrúa þegar kemur að svona massífum áróðri og þekkir kannski ekki neina múslíma og lesa blöðin og sjá alla neikvæðu umfjöllunina.