Tuesday, February 06, 2007

Skandall!!

Í seinustu viku sá ég heimildarþátt um stórt kynferðisbrotamál sem átti sér stað hérna í Danmörku sem hefur valdið miklum usla því svo virðist sem að hægt hefði verið að koma í veg fyrir meirihlutann af misnotkuninni ef brugðist hefði verið rétt við, eða bara brugðist við yfirleitt. Foreldrarnir voru báðir með alvarlega geðsjúkdóma og faðirinn byrjaði snemma að misþyrma eiginkonu sinni og seldi hana meðal annars til vændis en hún átti vinkonu sem hjálpaði henni að flýgja frá honum en skildi dætur sínar tvær eftir hjá honum. Hann fór þá að misnota þær kynferðislega(en var jafnvel byrjaður áður) en yfirvöld höfðu sterkan grun um hvað væri í gangi og næsta skref var að fjarlægja börnin frá heimilinu en þá bregður faðirinn á það ráð að flytja með börnin í annað sveitarfélag sem gerði ekkert í málinu. Önnur dóttirin var svo seld til fjórtán mismunandi manna en hún var bara níu eða tíu ára gömul. Allir mennirnir hafa fengið dóm en þeir voru frekar vægir að mínu mati en mjög þungir í samanburði við íslenska dóma. Ég sá svo viðtal við einn af gerningsmönnunum og hann gat ekki útskýrt hvernig hann gat gert þetta og hans líf er til dæmis eyðilagt en hann þarf að sitja inni í tvö ár og hefur misst vinnuna og fjölskylduna, börnin tekin af honum og konan hans liggur inni á geðdeild.
Sá svo í dag á netinu viðtölin við þá sem bjuggu á Breiðuvík sem börn og fylltist viðbjóði og finnst að íslenska ríkið ætti að skammast sín og refsa þeim sem brutu af sér í því máli og reyna svo að læra af mistökunum og hafa mun meira eftirlit með svona stofnunum. Mér finnst þetta rosalega stórt mál og alvarlegt og mun stærra en þetta hérna í Danmörku. skandall!!

2 comments:

Anonymous said...

Ja tad er otrulegt hvad islenska rikid tekur vaegt a svona malum.

En hugsid ykkur hraedilega stodu, ad komast ad thvi ad astkaer eiginmadur manns og barnsfadir hafi keypt og naudgad 10 ara barni. Hraedilegt.

Svo ekki se minnst a adra tholendur i tessu mali. Madur faer alveg hroll

Anonymous said...

Þetta er hreynn viðbjóður. Ég var að horfa á Kastljós í gær og það var verið að tala við þessa menn í Breiðarvíkur málinu og það gat varla einn maður talað án þess að fella tár, þeir eru allir mjög illa farnir eftir þetta og þetta hefur líklega eyðilagt líf allra þessara manna að einhverju leiti. Það þarf líka að gera eitthvað strax í þessu veita þessum mönnum hjálp og það sem þeir vilja líka er fá asökunarbeiðni frá hinu opinbera það ætti að gerast strax það þarf ekkert að funda um það. Svo er annað sem mér finnst hálf fáránlegt er það að það er ekki hægt að sækja neinn til saka því þetta mál er fyrnt!!! Æi veit ekki ég verð bara reið á að hugsa um þetta og það sorglega er að þetta hefði geta verið stoppað á sínum tíma en var ekki gert.