Thursday, January 22, 2009

Fyrsta bloggið 2009

Nohh! Það er greinilega fólk sem ennþá nennir að skoða bloggið mitt! En gaman :)

Lífð hefur verið rosalega skrítið í janúar og rokkað frá því að vera alvont yfir í að vera bara nokkuð spennandi og skemmtilegt. Ég á eitthvað erfitt með að fara frá honum Frank mínum í langan tíma og hef verið í miklum vangaveltum hvað ég eigi að gera í sambandi við verknámið mitt. Hef þurft að standa í smá veseni við sálfræðinginn í verknáminu sem er pínu ósveigjanlegur í sambandi við lengd verknámsins. Seinasta tilboð er að vera þangað til um 20.apríl sem eru hátt í þrír mánuðir úff!! Er að rannsaka málið sem er ansi erfitt þar sem fólk virðist svara emailum mjög seint og um síðir og stressið minnkar ekkert við það. Æi af hverju getur lífið aldrei verið bara pínu einfalt? Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef ekkert bloggað, er bara í neikvæðniskasti hérna flestalla daga að díla við hinar og þessar stofnanirnar.

Að skemmtilegri efnum þá var alveg hrikalega gott að vera heima um jólin. Hef bara sjaldan átt jafn hugguleg jól. Fékk fullt af quality time með litlu skottunum mínum og hitti gömlu góðu vinkonurnar mínar sem ég vill alls ekki missa sambandið við. Mestum tíma eyddi ég þó í faðmi foreldra minna sem var alveg frábært :)Frábært hvað þessi jól voru löng og hvað fólk hafði góðan tíma til að bara slappa af. Auðvitað var fullt af góðu fólki sem ég náði ekki að hitta en vonandi rætist úr því næst þegar ég kem.

Fannst mjög stórt þegar Obama tók við embætti sínu á þriðjudaginn. Ég og Frank vorum með tárin í augunum þegar Obama hélt ræðuna sína. Mér fannst eitthvað hátíðlegt við hann og fylltist strax jákvæðni og bjartsýni þó að maður megi ekki búast við of miklu því verkefni hans framundan er bæði stórt og flókið. Finnst bara fallegt að sjá hvað hann hefur góð áhrif á fólk allastaðar í heiminum og hann virðist vera vinsæll nú þegar og kannski mun hann geta notað það til að koma á meiri friði og betri samskiptum milli landa. Rússland er reyndar eitthvað í fílu en það er svosem ekkert nýtt hehe.

jæja krúttbomburnar mínar, takk fyrir að nenna að kíkka á þessa röfl í mér ! :)

1 comment:

Anonymous said...

Já ég hef lengi beðið eftir nýju bloggi en alltaf var jólasvindlið efst á síðunnu :)

Skil þig annars mjög vel að hafa ekki bloggað á meðan þú ert að standa í þessu stappi.
3 mánuðir er já langur tími og ösköp eðlilegt að þú sért efins.
Við stelpurnar bíðum annars spenntar eftir þér í "hittingana"

Kveðja, Halla Björk