Thursday, December 11, 2008

Jule

Er hægt að sakna fólks fyrirfram?? Ég get náttúruleg ekki beðið eftir að komast til Íslands um jólin og hafa það gott með familíunni EN finnst svo leiðinlegt að geta ekki haft Frank minn með. Er bara farin að sakna hans þó við séum séum saman og verðum það þangað til ég fer. Það er ekki alltaf auðvelt að vera í svona blönduðu sambandi get ég segja ykkur. Höfum aðeins tvisvar verið saman um jól af þeim fjórum árum sem við höfum verið saman. Væl og kvart og kvein.

Er annars bara búin á því á líkama á sál eftir þetta blessaða próf. Gat varla sofnað í gær því ég pældi svo mikið í hvað ég hefði getað gert öðruvísi í þessu helv prófi. Svo er bara að drífa sig í að byrja á næsta...er það hægt!?

Svo er brjálað að gera í félagslífinu þangað til ég fer heim. Er að fara að hitta tengdó á morgun en við ætlum að skoða miðbæinn og fallegu ljósin. Á laugardaginn er ég að fara í ekta julefrokost með fullt af Dönum og reyndar einni íslenskri stelpu :) Athra vinkona mín var svo að bjóða mér í trúlofunarveislu á laugardaginn sem er á sama tíma og julefrokostinn :( Ég er geggjað svekkt. Þetta er alvöru arabísk trúlofunarveisla sem aðeins er fyrir konur. Ég hefði sko alveg verið til í að fá að vera með í því. Örugglega fullt af geggjuðum mat og gotteríi. Athra var svekkt að ég gat ekki komist en við erum búnar að ákveða að ég fái að sjá myndirnar og svo ætlar hún að kenna mér allt um allar hefðirnar í kringum trúlofun og brúðkaup. Á sunnudag er ég svo að fara í julehygge hjá Nicole vinkonu minni. Það lítur því ekki út fyrir að ég sé að fara að gera mikið í þessari ritgerðarelsku á næstunni!

Í gær var mjög huggulegur dagur. Ég skilaði ritgerðinni á hádegi og hitti allan íslenska hópinn. Við fórum svo niður í bæ og "hugguðum" okkur með góðum mat og bjór á kaffihúsi. Ég fór svo í klippingu strax á eftir. Ég náði svo að eyða fullt af peningi í bænum, kreppa hvað?? Keypti mér jólaföt og snyrtidót. Fékk næstum blæðandi magasár af samviskubiti. Frank leist voða vel á þetta allt saman þegar ég hélt tískusýninguna fyrir hann um kvöldið og þá minnkaði magasárið aðeins hehe.

Í dag er varla hægt að sjá húsin hér í kring fyrir þoku og grámyglu sem er EKKI hressandi.

Hafið það gott elskurnar!!

3 comments:

Anonymous said...

En thu varst ad kaupa thetta, annars hefdiru farid i jolakottinn!

Anonymous said...

Úff samviskubit kannast við það, fæ það á hverjum degi, ég keypti 50 umslög í dag og fullt af jólastjörnulímmiðum og eyddi 2þús kalli, fékk alveg í magann!! Djö... er þetta fljótt að koma. Ég er svo dugleg að eyða í smáhlutina fyrir jólabras að ég er hrædd um að ég fari í jólaköttinn :(

Gangi þér vel með framhaldið í skólanum... svo stutt í að þú komir jibbí... P.S skil þetta vel með að sakna Franks nú þegar, þetta er svona eins og pínu kvíðatilfinning...

Anonymous said...

Hæ skvís!!! Get engan vegin fundið hemilisfangið þitt. Ertu til í að senda mér það. Getur bara sent það á mailið mitt sem er annarosa@mi.is