Brúðkaup á SamsöFerðalagið byrjaði mjög illa en það var hellirigning og ferjan biluð þannig að við þurftum að bíða í pínu litlum bæ í tvo klukkutíma. Við gerðum gott úr því og keyptum bjór og pizzu. Fyrsta nóttin í blautu tjaldi var ekki góð þar sem vindsængin hans Frank var ónýt þannig að hann svaf ekki neitt og ég svaf kannski í 2 eða 3 tíma. Parið var svo gift í mjög krúttlegri gamalli kirkju á ótrúlega fallegum stað á eyjunni. Veislan var fín með góðum mat og nóg af bæði víni og bjór. Haldnar voru margar hjartnæmar ræður þar sem mörg tár fengu að falla. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hata pínu stórar veislur þar sem ég þekki engann en þetta var svosem ágætt.

Við vorum mjög vel undirbúin undir mikla rigningu og vesen því það er jú alveg ljóst að þegar fröken Kristrún á að sofa í tjaldi rignir alveg pottþétt. Við höfðum rétt fyrir okkur en það rigndi alveg svakalega eins og fólk hefur væntanlega séð í fréttunum. Maður reyndi að sjálfsögðu bara að gera gott úr þessu sem tókst nokkuð vel þar sem við vorum í alveg frábærum vinahópi og ég vil bara þakka þeim fyrir fráb

æra hátíð ! :)
Við vorum í frekar stórum tjaldbúðum en þar voru til dæmis Siggi x og kærastan hans Lilja, Gunni og Nína og svo Biggi og Guðný frá Akureyri. Við hittum svo Hrönn, Jón og Önnu og Peter og Louise en þau bjuggu á öðrum stöðum en við . Við eyddum í raun ekki miklum tíma á sjálfu tjaldsvæðinu því það var svo mikið af góðri tónlist sem við vildum ekki missa af. Það er samt alltaf erfitt að sjá allt sem manni langar að sjá þannig að stundum var nett stress á manni að plana tónleika, pissuferðir, bjórferðir og vinahitting.
Okkur tókst þó að sjá : 1234, Detektivbyrån, The floor is made of lava, Arcade fire, LCD soundsystem, Björk, The Sounds, Beastie boys, Boris, Queens of the stone age, Annuals, Booka shade, The National, Hayseed Dixie, The Flaming lips, The Who, Red hot chili peppers, Dream of an opium eater, Wilco og Arctic monkeys. Samtals 20 bönd!
Flest af þessu var mjög gott en annað slapt. Nenni ekki að fara djúpt í einhverja gagnrýni þó.

Við vorum mjög ánægð og fegin að komast heim á hreint og gott klósett og hlýtt rúm ! Klósettin á Roskilde eru skandall en í byrjun hátíðar voru kamrarnir yfirfullir þannig að maður gat ekki notað þá og svo í lok hátíðarinnar var enginn klósettpappír neinstaðar og ef maður reyndi að fá pappír frá starfsfólkinu var bara sagt nei. ok smá tuð ! Það var gaman og mig langar að fara aftur á næsta ári en myndi samt hugsa mig tvisvar um ef veðrið verður jafn vont.
Á morgun koma svo ofurgellurnar Sólrún og Anna Þorbjörg og Guð hvað mig hlakkar hrikalega til að sjá þær!!!